155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.

316. mál
[11:18]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Líkt og í málinu hér á undan þá fagna ég því að hér sé verið að framlengja lög sem gera það að verkum að við getum brugðist við hratt og örugglega þegar vá steðjar að. Við vitum að það er útlit fyrir að við sjáum nýja atburði í lok þessa mánaðar eða í desember og við vitum ekki neitt, vitum ekki hvert þetta fer, hvert hraunið rennur, hvort þetta fer sunnarlega í átt að Grindavík eða norðarlega í átt að Vogum. Ég held að það hafi farið um marga Vogamenn í síðasta gosi þegar gosið var komið mjög norðarlega og held að þeir hafi upplifað þetta eins og þetta væri bara í garðinum heima hjá þeim.

Ég fagna því að sjálfsögðu að það sé verið að bregðast við og það sé verið að búa til grundvöll fyrir ráðherra að taka skrefin skjótt þannig að ekki sé verið að drolla með hlutina. En þegar við byrjuðum að byggja varnargarðana í upphafi þá var talið nauðsynlegt að stofna sjóð, sérstakan sjóð, ég man nú ekki hvað hann hét, hvort hann hét almannavarnasjóður eða hvað, og að einhver hluti af fasteignagjaldi myndi renna í þennan sjóð. Þetta voru auknar álögur á íbúa þegar þessi sjóður var stofnaður en ég held að allir hafi verið tilbúnir í sjálfu sér til að taka á sig slíkar álögur, sem eru í raun og veru ekki háar, til að verja orkumannvirkin sem Suðurnesin byggja í raun og veru líf sitt á að séu til staðar. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að því hvort það hafi ekki komið til greina, bara í framlengingu, að nýta þennan sjóð til frekari uppbyggingar á varnarmannvirkjum á svæðinu.