155. löggjafarþing — 17. fundur,  1. nóv. 2024.

vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.

316. mál
[11:20]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að hér er verið að búa til rými fyrir ráðherra til að geta tekið ákvarðanir skjótt ef þannig aðstæður skapast á Reykjanesi. Í síðustu atburðum hófst eldgoss norðar en við kannski flest höfðum vonað og það liggur fyrir að það er landris á Reykjanesi núna. Það er í svipuðum takti og verið hefur í aðdraganda fyrri atburða sem segir okkur það að við megum búast við að næsti atburður geti hafist í lok þessa mánaðar eða í desember. Ef þær aðstæður skapast að við fáum aftur eldsumbrot svona norðarlega í þessum kvikugangi þá geta þær aðstæður skapast að Reykjanesbrautin sé í hættu og þá tel ég að ráðherra sem þarf að taka þessar ákvarðanir varðandi varnarmannvirki verði að hafa skýra heimild frá Alþingi til að geta gert það og brugðist við með mjög skjótum hætti eins og gert var fyrir ári síðan. Ég vil enn á ný þakka Alþingi fyrir skjótt viðbragð og sýna íbúum Reykjaness þann mikla skilning sem þarna þurfti á að halda. Sömuleiðis var ákveðið að það yrði sérstakt gjald tekið sem á að renna sitt skeið í lok árs 2026. Það gjald miðaðist við (Forseti hringir.) þann kostnað sem var við fyrstu varnargarðana en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar.