vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir góð svör. Fyrir okkur sem búum á Reykjanesinu þá er mjög mikilvægt að við getum haldið áfram að sækja vinnu. Það er líka mikilvægt fyrir íslenskan efnahag að við höldum þessu gangandi. Eins og ég sagði áðan eru þetta allt að 18.000 bílar á dag. Ef þetta er að sumri til eru allt að tveir þriðju af þeim bílum bílaleigubílar og kannski er hægt að færa söfnunarsvæði þeirra einhvers staðar annað á Reykjavíkursvæðið, eða Stór-Hafnarfjarðarsvæðið, eins og við höfum stundum kallað það. En það er samt sem áður mjög erfitt að koma mannskap sem þarf að fara fram og til baka þarna á milli. Þó svo að við öll vonum að sjálfsögðu að eldgosin á Reykjanesi hætti, við vonum öll að þau verði þá á svæðum þar sem þau hafa ekki áhrif á byggð eða innviði, þá þurfum við alltaf, þegar kemur að því að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir, að taka ákvarðanir sem stundum, já, er kannski ekki þörf á. Ég segi það hér úr þessum ræðustól að hver sá ráðherra sem tekur ákvörðun um fyrirbyggjandi aðgerð, ef einhver ætlar að koma og reyna að segja að það sé rangt að fara í slíka aðgerð þegar kemur að náttúruvá þá get ég bent á þúsundir dæma um það að slíkt er rétt ákvörðun vegna þess að við þurfum alltaf að hugsa um hvernig við getum farið í fyrirbyggjandi aðgerðir áður en hlutirnir gerast. Þess vegna er mikilvægt að við byrjum á þessum varnargarði sem fyrst meðan tólin og tækin og veðrið og annað er til staðar. Ég vona að við finnum út úr því hvar þetta er strand í stjórnkerfinu og bara leysum það sem hraðast.