vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningu til mín. Hv. þingmaður nefnir hér mikilvægi bæði búsetu en ekki síður atvinnulífs á Reykjanesi sem mér er mjög vel kunnugt um og mikilvægi þess að fólk geti sótt vinnu og farið um þessa mikilvægu samgönguleið sem Reykjanesbrautin er. En þá vil ég árétta að það er líka mikilvægt að geta búið á heimili sínu og að heimili manns verði ekki fyrir tjóni vegna hugsanlegra náttúruhamfara sem orðið geta á Reykjanesi. Hv. þingmaður nefnir hér mikilvægi þess að fara í fyrirbyggjandi aðgerðir og ég gæti ekki verið meira sammála honum enda höfum við, og ég, tekið margar ákvarðanir á síðustu 12 mánuðum einmitt til að fyrirbyggja tjón sem annars hefði orðið á Reykjanesi, ég er alveg sannfærð um það og sérfræðingarnir líka, tjón sem hefði jafnvel getað komið í veg fyrir að fólk gæti búið á heimilum sínum. Nú erum við að sigla inn í veturinn og það er mikilvægt að við tryggjum það að heitt og kalt vatn og rafmagn verði á svæðinu og komi frá Svartsengi. Við höfum farið þar í fyrirbyggjandi aðgerðir. Ég hef sömuleiðis oft sagt um almannavarnakerfið okkar á Íslandi í gegnum áratugina að við erum búin að vera framúrskarandi í viðbragði. En núna hafa þær hamfarir sem hér hafa orðið kennt okkur það að við þurfum að vera kannski skrefinu framar í forvörnum. Ég held að við gætum orðið framúrskarandi í forvörnum rétt eins og í viðbragði og það höfum við svo sannarlega verið á Reykjanesi. Þetta er áskorun. Við erum öll óhrædd við að taka ákvarðanir til að bregðast við þeim miklu áskorunum (Forseti hringir.) sem þessi verkefni kalla á.