155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

skipan sendiherra í Bandaríkjunum.

[15:04]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Allt þetta kjörtímabil hafa þingmenn og nefndir beðið svara um stórt og smátt frá ráðuneytunum, frá framkvæmdarvaldinu. Á hverjum einasta þingfundi hefur hæstv. forseti staðið upp og lesið upp bréf þar sem er beðið um fresti til að svara fyrirspurnum. Bréfum er svarað seint eða illa og eins og í því tilviki sem hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir var að nefna þá berast engin svör. Við vitum öll að þetta eru algerlega óboðleg vinnubrögð og til þess var hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sett á fót, til þess að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu og fá þau svör sem þingmönnum ber að fá við spurningum sem þarf að spyrja. Hér eru spurningar sem ekki hefur verið svarað og þegar leyndarhyggjan er komin á þetta stig þá hljótum við að spyrja: Hvað er verið að fela? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)