skipan sendiherra í Bandaríkjunum.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra bað um dæmi. Ég sé að hv. þm. Björn Leví hefur óskað eftir orðinu. Ég viss um að hann getur farið yfir nokkur þeirra en ég kom með eitt tiltekið dæmi. Það dæmi er skipan sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Það tók örfáa daga að komast að þeirri niðurstöðu að Svanhildur Hólm væri hæf til þess að gegna sendiherrastöðu í Bandaríkjunum. Ég held að það hafi verið innan við fimm dagar sem það tók utanríkisráðuneytið að komast að því að hún væri hæf til að verða skipuð tímabundið í sendiherrastöðu í Bandaríkjunum. Það hefur tekið ráðuneytið fimm mánuði að svara stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd um hvernig það samrýmist lögum um utanríkisþjónustu Íslands að skipa sendiherra sem hefur enga reynslu af utanríkismálum. Þá hlýtur það að hafa legið til grundvallar á þessum fimm dögum sem við höfðum til þess að ákveða hvort það ætti að skipa sendiherra. Eða hvað? Hvers vegna tekur það þá fimm mánuði að svara okkur og ekki enn þá komið svar, virðulegi forseti? Er það kannski vegna þess að það var bara ekkert skoðað? Það skiptir kannski bara engu máli. (Forseti hringir.) Við hljótum líka að eiga rétt á að vita hvers vegna það er eitthvert hernaðarleyndarmál að sjá starfsferilsskrá sendiherrans okkar í Bandaríkjunum. Af hverju má almenningur ekki sjá hana?