skipan sendiherra í Bandaríkjunum.
Forseti. Það er þetta með þessar blessuðu alhæfingar. Það er nú svo að margoft hafa þingmenn komið hérna upp og kvartað undan því að já, einstök mál hafi dregist lengi. Það er svo algilt að einstök mál dragist lengi að það er hægt að alhæfa um stjórnsýsluna alla þegar kemur að þessum viðkvæmu málum. Almennt séð er þorra fyrirspurna bara svarað á tiltölulega eðlilegan hátt en við erum að tala um sum pólitísk erfið mál. Nú erum við með eldra dæmi einmitt um skýrslur um eignir Íslendinga í skattaskjólum sem var spurt um hérna í ræðustól þingsins og þegar þáverandi ráðherra svaraði því þá var hann búinn að fá svar en sagði að það væri alveg að koma til þingsins. Svo kom það ekki til þingsins fyrr en eftir kosningar af því að ráðherra vildi ekki setja það í kosningasamhengi. Þess vegna erum við að vekja athygli á því að það er alvarlegt þegar um er að ræða eins einfaldar spurningar og þetta eru að það taki svona langan tíma (Forseti hringir.) að svara þinginu sem ber ábyrgð á eftirliti með athöfnum ráðherra. Það er alvarlegt mál hvað ráðherrar (Forseti hringir.) geta gert og við þurfum að hafa eftirlit með því.