155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

315. mál
[15:15]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti hv. atvinnuveganefndar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar. Eins og kemur fram í frekar stuttu nefndaráliti þá fjallaði nefndin um málið og fékk á sinn fund gesti frá matvælaráðuneytinu auk þess að fá tölvupóst frá atvinnuteymi Grindavíkurbæjar sem mælti með afgreiðslu málsins.

Í stuttu máli er í frumvarpinu lögð til sú breyting á lögum um Afurðasjóð Grindavíkurbæjar að framlengja úrræði laganna um eitt ár eða til 31. desember 2025. Nefndin leggur sem sagt til að frumvarpið verði afgreitt óbreytt.

Inga Sæland og Teitur Björn Einarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Undir álitið skrifa hv. þingmenn Þórarinn Ingi Pétursson, formaður og raunar framsögumaður málsins, Halldóra Mogensen, Eva Dögg Davíðsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Þorgils Magnússon, Inga Sæland, Teitur Björn Einarsson, og sá er hér stendur, Óli Björn Kárason.