155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

almannatryggingar.

320. mál
[15:19]
Horfa

Frsm. velfn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, um eingreiðslu. Þetta mál er frá velferðarnefnd.

Með þessu frumvarpi er í 1. gr. lagt til að við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

„Þeir sem eiga rétt á greiðslu örorkulífeyris skv. 24. gr., sbr. 26. gr., eða endurhæfingarlífeyris skv. 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, á árinu 2024 skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 70.364 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greiddar bætur hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2024, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.“

Gert er ráð fyrir því að lög þessi öðlist þegar gildi ef þau verða samþykkt.

Samkvæmt greinargerð frumvarps til fjáraukalaga V fyrir árið 2024 er gert ráð fyrir að nýta 1,7 milljarða kr. af svigrúmi á málefnasviði 27, Örorka og málefni fatlaðs fólks, til fjármögnunar skattfrjálsrar eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til samræmis við eingreiðslur í desember síðustu ár. Með þessu frumvarpi sem ég mæli fyrir hér er lagt til að kveðið verði á um það í ákvæði til bráðabirgða að eingreiðslan skuli ekki teljast til tekna greiðsluþega og teljast þannig skattfrjáls. Auk þess er kveðið á um að hún skuli ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna. Þetta ákvæði er til samræmis við ákvæði um fyrri eingreiðslur til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

Herra forseti. Það er mikilvægt að þetta frumvarp fylgi líkt og önnur ár með í þeim tillögum sem lagðar eru til í fjáraukalögum um eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til þess að tryggja að fólk sem fái þá eingreiðslu lendi ekki í ofgreiðslum í kerfinu og þurfi að greiða til baka vegna þeirrar búbótar sem eingreiðslunni er ætlað að vera. Mál þetta er lagt fram af velferðarnefnd allri og ég ætla því að leggja það til að að þessari umræðu lokinni gangi frumvarpið til 2. umræðu.