155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

þingsköp Alþingis.

323. mál
[15:36]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Nú er ekki hægt að komast hjá því að Alþingi skeri úr um kjörgengi og gildi og alls konar svoleiðis, nema við breytum stjórnarskránni. En ég velti því fyrir mér hvort það sé nauðsynlegt að þessi nefnd sé skipuð alþingismönnum, hvort það geti í rauninni lagað ákveðna málsmeðferðarvankanta sem Mannréttindadómstóllinn benti á. Ef nefndin væri í fjarlægð frá þinginu og í rauninni ekki unnin af þingmönnunum sjálfum sem skeri úr um hæfi sitt þá gæti það kannski lagað smá galla, alla vega þangað til við náum að laga stjórnarskrána.