155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

þingsköp Alþingis.

323. mál
[15:37]
Horfa

Flm. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að slíkar vangaveltur myndu nú þarfnast nánari skoðunar og meiri vinnu heldur en hér hefur verið lögð til grundvallar. Hér er um að ræða, getum við sagt, lágmarksbreytingu til að styrkja stöðu undirbúningskjörbréfanefndar sem hefur verið að störfum eftir allmargar undanfarnar kosningar og reynslan frá haustinu 2021 sýndi að það veitti ekki af að hafa aðeins skýrari lagagrundvöll undir starfsemi þeirrar nefndar. Það er hægt að hugsa sér alls konar möguleika til þess að prófa niðurstöður kosninga og hægt að velja því með lagalegum hætti ýmsan búning. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að á meðan stjórnarskránni er ekki breytt þá hefur Alþingi enn þá endanlegt úrslitavald um það hvort kosningar eru ógildar eða ekki, en ég held að það hefði kostað meiri vinnu að fara út í að leita leiða til að finna aðrar leiðir í sambandi við þetta. Undirbúningskjörbréfanefndin er þegar fyrir hendi í þingsköpum og hér er um að ræða tillögur til lágmarksbreytinga til að styrkja lagalega stöðu hennar. Ég tel að við komumst ekki lengra með þetta í ljósi þess tíma sem við höfum fram að kosningum 30. nóvember.