155. löggjafarþing — 18. fundur,  11. nóv. 2024.

þingsköp Alþingis.

323. mál
[15:46]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (M) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni og fráfarandi forseta Alþingis fyrir sín svör. Ég vil jafnframt benda á það að í framtíðarnefnd höfum við verið að skoða þær ótrúlegu tæknibreytingar og framfarir og um leið áskoranir sem fylgja nýjum tæknimöguleikum, þar á meðal gervigreindinni, haldið um það ráðstefnur og málþing. Í því samhengi langar mig til að spyrja hæstv. forseta Alþingis, Birgi Ármannsson, hvort hann sæi ekki fyrir sér tækifæri til þess núna, m.a. í ljósi þess aðgangs sem við höfum að öllum mögulegum gögnum í gegnum öll gúglin og allar netveiturnar og allt sem við æskjum, að gera átak í því að nýta þann búnað sem við þó höfum hér og þá sjónvarpsrás sem við búum að í þinginu, með einu tilteknu stöðugildi a.m.k., við að breyta þessari útsendingu á þingfundum í skilvirkari og meira upplýsandi rás til að varpa betra ljósi á samfélagsmálin og umræðuefnin sem eiga sér stað í þinginu, birta okkur gögn, birta okkur fyrri upplýsingar, fyrri niðurstöður fyrri þinga, samanburð við aðrar þjóðir. Þetta mætti gera í samstarfi við háskóla og veita mönnum þjálfun í gagnaöflun og miðlun og fyrst og fremst til þess að upplýsa þjóðina um hvað við erum að tala hér um. Það þarf ekki að hlusta lengi eftir því á útvarpsstöðvum eða sjónvarpsstöðvum að það skortir heilmikið upp á þekkingu, skilning og innsýn í hin brýnustu þjóðfélagsmál.