þingsköp Alþingis.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni fyrir að koma hér upp áðan og ræða um þær hugmyndir sem hann hafði varðandi framtíðarnefndina og það að nýta tæknina betur. Hann nefndi að hann myndi vilja sjá það koma til greina að auka hér um eitt stöðugildi og nýta þá sjónvarpsstöð sem er hjá Alþingi enn betur til þess að auka umfjöllun og greina frekar umræður. Mér þykir þetta mjög athyglisvert sem þingmaðurinn kemur inn á. Þá langar mig aðeins að velta því upp að nú erum við að greiða samkvæmt fjárlagafrumvarpi yfir 7.000 milljónir til fjölmiðlaumfjöllunar og þar af fer langstærstur hluti til Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið hefur miklum skyldum að gegna lögum samkvæmt og ég velti því fyrir mér hvort það sé mat þingmannsins að Ríkisútvarpið sé mögulega ekki að sinna þessu hlutverki sínu sem skyldi. Getur einmitt verið að það sé hlutverk annarra að sinna ákveðnum þáttum er kemur að fjölmiðlaumfjöllun og væri þá skynsamlegt að skoða það hvort við ættum að endurhugsa það hvernig við veitum fjármagn til fjölmiðla?