þingsköp Alþingis.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni kærlega fyrir þetta. Það gleður mig mjög að heyra að hann sé ekki að leggja hér til að það komi til nýtt stöðugildi því það er akkúrat ekki það sem við þurfum í dag. Nei, við þurfum aðhald. Við þurfum aðhald í ríkisrekstrinum og þess vegna fagna ég því að þú sért ekki að leggja þetta til heldur að nýta einmitt mannauðinn sem við höfum nú þegar. Það eru nýir tímar, nýr veruleiki og við sjáum fjölmiðlaumfjöllun frá svo mörgum fleiri aðilum en Ríkisútvarpinu. Vil ég þar til að mynda nefna Morgunblaðið sem er með mjög vandaða og ítarlega umfjöllun um stjórnmálin. Þú nefnir Vísi og ég tek undir það. Síðan verðum við að horfa á alla hina nýju samtalsþætti sem nefnast, með leyfi forseta, „podcast“. Þarna er nýr veruleiki og virkilega ánægjulegt að sjá hvernig umfjöllunin, þjóðmálaumræðan er. Ég tek þáttinn Þjóðmál sem dæmi sem heldur uppi mjög góðri umfjöllun um pólitíkina. Þess vegna finnst mér brýnt að við þingmenn hér hugsum upp á nýtt hvernig við erum að ráðstafa fjármagni til fjölmiðla. Það eru fleiri en Ríkisútvarpið sem eru að sinna þessu og geta sinnt þessu og við þurfum að auka frekar samkeppnina á þessu sviði heldur en að vera með einokun.