þingsköp Alþingis.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir, virkilega gaman að eiga þetta samtal hér við þig í dag. Þetta skiptir máli. Við þurfum upplýsta umræðu og þess vegna verðum við að horfa fram á við og alltaf að hugsa: Getum við kannski mögulega gert hlutina öðruvísi en við höfum verið að gera þá? Við erum stödd á nýjum tíma, það er ný tækni og við hér inni verðum að horfa á ný tækifæri og það á svo sannarlega við um fjölmiðlana eins og allt annað sem við eigum og erum að ræða í þessum góða sal.