kosningalög.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á kosningalögum, nr. 112/2021. Frumvarp þetta er flutt af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í samráði við dómsmálaráðuneyti.
Samkvæmt kosningalögum hefur íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og hefur átt lögheimili hér á landi, kosningarrétt í 16 ár frá því að hann flytur lögheimili af landinu — í 16 ár. Eftir þann tíma skal hann sækja um til Þjóðskrár Íslands að vera tekinn á kjörskrá. Samkvæmt 6. málsl. 2. mgr. 3. gr. kosningalaga gildir ákvörðun um að einhver skuli þannig tekinn á kjörskrá í fjögur ár frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram.
Hinn 14. október sl. gekk forsætisráðherra á fund forseta Íslands og baðst lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Forseti féllst á tillögu forsætisráðherra og jafnframt að þing skyldi rofið 30. nóvember 2024 og munu almennar kosningar til Alþingis fara fram sama dag. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneyti og Þjóðskrá Íslands hafa hátt í 300 manns sótt um að vera teknir á kjörskrá skv. 2. mgr. 3. gr. kosningalaga. Séu skilyrði uppfyllt munu ákvarðanir um að taka þá á kjörskrá taka gildi frá 1. desember nk., eða degi eftir alþingiskosningarnar sem halda á 30. nóvember.
Í ljósi þess að almennum kosningum til Alþingis var flýtt leggur nefndin til að bætt verði við kosningalög bráðabirgðaákvæði þess efnis að heimilt verði að miða gildistöku ákvörðunar þjóðskrár um að taka kjósanda á kjörskrá við þann dag sem ákvörðun þjóðskrár er tekin enda hafi umsókn þess efnis borist Þjóðskrá Íslands fyrir 19. nóvember 2024. Og bara svo það sé alveg stafað hér ofan í hv. þingheim: Umsóknin þarf að berast eigi síðar en mánudaginn 18. nóvember nk. Er þá miðað við að allar þær umsóknir sem hafa borist þjóðskrá eftir 1. desember 2023 til og með 18. nóvember 2024 og uppfylla skilyrði ákvæðisins taki gildi við ákvörðun þjóðskrár þar um.
Eins og fram hefur komið þá flytur hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd málið og ég geri ráð fyrir því að það sé eining um þessa breytingu hér á hinu háa Alþingi þar til annað kemur í ljós.