staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Mig langar til þess að þakka framsögumanni, hv. þm. Jóhanni Friðriki Friðrikssyni, fyrir mjög góða yfirferð á málum sem ég veit að skipta okkur öll mjög miklu máli. Hér er um að ræða þrjú stór og mikilvæg mál fyrir íslenskt fjármálakerfi en þetta snýst líka fyrst og fremst um netöryggi á Íslandi. Rétt eins og hv. framsögumaður fór yfir er þetta stafrænn viðnámsþróttur, rekstrarlegur viðnámsþróttur fyrir fjármálageirann, eða DORA. Ég hjó eftir því í framsögu hv. þingmanns að verið er að gera kostnaðarmat með tilliti til frekari verkefna Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitsins og svo Fjarskiptastofu. Hins vegar langar mig að nota tækifærið og vekja athygli á því að með hertari kröfum á fjármálafyrirtæki þá þarf líka að líta til menntunar á sviði netöryggis á Íslandi, m.a. til tæknilegs netöryggis fyrir stjórnendur sem eru ekkert sérstaklega þjálfaðir á sviði tölvutækni eða netöryggis. Vil ég því nýta tækifærið og spyrja hvort eitthvert kostnaðarmat muni fara fram á því hvernig hægt verði að efla netöryggismenntun hér á landi, hreinlega til þess að við getum menntað fólk á sviði netöryggis. Við vitum að Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík hafa sett saman braut á sviði netöryggis en eins og mjög margt á sviði háskólamenntunar hér á landi sætir það ákveðinni vanfjármögnun. Vil ég því vekja athygli á þessu og óska eftir áliti þingmanns á því.