155. löggjafarþing — 19. fundur,  12. nóv. 2024.

staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka við EES-samninginn.

326. mál
[13:50]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Jóhann Friðrik Friðriksson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að netöryggismál eru gríðarlega mikilvæg og það er komið inn á þessa samræmingu, hvert við viljum stefna ásamt Evrópusambandinu í þeim efnum. Við höfum auðvitað verið að taka upp samstarf við okkar vinaþjóðir hvað varðar netöryggi á undanförnum árum, líka bara út af breyttu öryggisástandi í Evrópu, og ég leyfi mér að segja í heiminum. Ég tek undir það, ég held að við þurfum að halda áfram á þeirri vegferð.

Ráðherrar í ríkisstjórn hafa sannarlega verið að setja þetta á dagskrá. Það skiptir máli að setja ekki bara fram áætlanir og vilja, fjármagn verður að fylgja, þannig að þar tek ég undir með hv. þingmanni og fagna raunar að hún sé að lyfta þessum mikilvæga málaflokki upp. Í mínum huga þurfa stjórnvöld að leggja drög að netöryggissetri hér á Íslandi þar sem við sameinum bæði rannsóknir og þróun á þessu sviði, hvert við viljum stefna í menntamálum og auðvitað fyrst og fremst þessa samvinnu stjórnvalda, menntakerfis og almennings á sviði netöryggis.