útlendingar.
Virðulegi forseti. Með því frumvarpi sem hér er lagt fram er gert ráð fyrir að það verði gerð breyting á 44. gr. laga um útlendinga sem felst í því að hámarkstími dvalarleyfa sem veitt eru á grundvelli sameiginlegrar verndar í kjölfar fjöldaflótta verði lengdur úr þremur árum í fimm.
Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er markmið frumvarpsins að bregðast við þeirri stöðu sem gæti skapast í mars 2025 þegar þriggja ára heimild ráðherra um sameiginlega vernd í kjölfar fjöldaflótta vegna stríðsins í Úkraínu rennur út. Verði frumvarpið ekki að lögum munu allir einstaklingar sem hlotið hafa sameiginlega vernd skv. 44. gr. laganna eiga rétt á efnislegri meðferð á umsókn um alþjóðlega vernd eða framlengdri dvöl á öðrum lagagrundvelli á næsta ári. Ljóst er að það myndi auka kostnað við málaflokkinn í heild vegna umsýslu og þjónustu sem fylgdi slíkum fjölda umsókna.
Nefndin tekur undir markmið frumvarpsins og telur brýnt að stjórnvöldum verði heimilt að endurnýja dvalarleyfi á grundvelli fjöldaflótta í allt að fimm ár. Það sé ekki síst mikilvægt til að stuðla að auknum fyrirsjáanleika um framlengda dvöl fyrir þennan hóp einstaklinga sem nýtur sameiginlegrar verndar hér á landi.
Umsagnaraðilar benda m.a. á mikilvægi þess að umræddur hópur búi við aukinn fyrirsjáanleika og ákvörðun ráðherra um beitingu sameiginlegrar verndar liggi fyrir með eðlilegum fyrirvara.
Undir þetta nefndarálit skrifar sú sem hér stendur ásamt hv. þingmönnum Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur, Jódísi Skúladóttur og Líneik Önnu Sævarsdóttur.
Virðulegur forseti. Ég vil segja að það hefur verið mikill samhugur hér í sölum Alþingis um að standa með Úkraínufólki og þeim sem hingað hafa leitað verndar og ég held að þetta falli vel að því. Hér aukum við fyrirsjáanleika fyrir það ágæta fólk og þau geta dvalið hér áfram.