stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Með frumvarpinu er lagt til að ríkissjóður ábyrgist 90% stuðningslána sem fjármálastofnanir veita rekstraraðilum sem stundað hafa atvinnustarfsemi í Grindavík á tilteknu tímabili og orðið fyrir verulegu tekjutapi vegna áhrifa jarðhræringanna á Reykjanesskaga.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti en nefndarálitið liggur frammi.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill nefndin árétta sérstaklega mikilvægi þess að málið nái fram að ganga með það að markmiði að viðhalda atvinnustarfsemi rekstraraðila í Grindavíkurbæ, einkum minni rekstraraðila, eða eftir atvikum til að aðstoða rekstraraðila við að byggja upp starfsemi annars staðar á landinu.
Í umsögnum um málið er ítrekað mikilvægi frekari stuðningsaðgerða við atvinnulífið í Grindavík. Nefndin tekur undir þau sjónarmið og telur stuðningslán vera lið í nauðsynlegum aðgerðum til að styðja við atvinnulíf í Grindavík. Auk þess er stefnt að framlengingu nokkurra tímabundinna stuðningsaðgerða, m.a. að framlengja tímabil rekstrarstuðnings vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, sbr. lög nr. 15/2024. Stuðningslán ein og sér munu ekki duga til að bregðast við þeim vanda sem sum fyrirtæki standa frammi fyrir en þau geta nýst fyrirtækjum í ákveðnum tilvikum. Til lengri tíma litið þurfi jafnframt að skoða möguleika á frekari aðgerðum en það fellur þó ekki undir efni þessa frumvarps.
Nefndin áréttar það sem fram kemur í skýringum við 14. gr. frumvarpsins að ráðherra megi útfæra nánar efnisákvæði frumvarpsins ef þess reynist þörf, svo sem vegna einhverra ófyrirséðra tæknilegra atriða við veitingu stuðningslána á grundvelli ákvæða frumvarpsins.
Nefndin leggur til breytingar á frumvarpinu um undanþágu frá lögum um ríkisábyrgð. Í samráði við fjármála- og efnahagsráðuneytið leggur nefndin til að lög um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997, gildi ekki um ábyrgðir ríkissjóðs á stuðningslánum samkvæmt frumvarpinu. Lögin eiga fyrst og fremst við þegar ríkissjóður veitir ábyrgðir vegna einstakra framkvæmda eða verka en ekki þegar veittur er almennur efnahagslegur stuðningur við fyrirtæki. Samsvarandi undanþága var jafnframt gerð vegna laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Guðbrandur Einarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Oddný G. Harðardóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir og Sigþrúður Ármann.
Virðulegi forseti. Eins og fram kom hér á undan þarf að skoða möguleika á frekari aðgerðum. Þar hefur svokölluð Grindavíkurnefnd komið fram með nokkrar mikilvægar ábendingar sem mikilvægt er að ný ríkisstjórn og nýtt þing skoði sem fyrst eftir að þing kemur saman. Sér í lagi þarf að skoða, miðað við þær athugasemdir sem við fengum frá minni rekstraraðilum í Grindavík, möguleg uppkaup á atvinnuhúsnæði.