fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Við ræðum hér fimmta fjáraukalagafrumvarp ársins. Þrjú þeirra einskorðuðust við stuðningsaðgerðir vegna atburðanna á Reykjanesskaga. Eitt þeirra var lagt fram vegna aðkomu ríkissjóðs að kjarasamningum á almennum markaði. Nú er lagt fram fimmta frumvarpið.
Aðeins um efni frumvarpsins. Tilefni til aukinna fjárheimilda í frumvarpinu eru af ýmsum toga, svo sem aukin vaxtagjöld, aukinn stuðningur við Úkraínu, vetrarþjónusta Vegagerðarinnar, aukin framlög vegna þjónustutengdrar fjármögnunar sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu og aðgerðir vegna ofbeldis gegn börnum og meðal barna.
Þá eru lagðar til tvær breytingar á 5. gr. fjárlaga yfirstandandi árs. Lagt er til að lántökuheimild ríkissjóðs verði hækkuð úr 230 milljörðum kr. í 250 milljarða kr. þar sem fyrirséð er að staða ríkisvíxla verður hærri en lagt var upp með í fjárlögum. Skýrist hækkunin að mestu leyti af frestun á sölu hluta ríkissjóðs í Íslandsbanka hf. Þá er lagt til að heimild fyrir endurlán til Byggðastofnunar verði hækkuð úr 3 milljörðum kr. og verði allt að 5 milljarðar kr. á árinu 2024 vegna aukinnar eftirspurnar eftir lánum í kjölfar aðildar Byggðastofnunar að ábyrgðarkerfi Evrópska fjárfestingasjóðsins.
Meiri hlutinn leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á frumvarpinu:
A-liður 3. gr. orðist svo: Í stað fjárhæðarinnar „200 ma.kr.“ í 1. tölulið kemur: 230 ma.kr. Um er að ræða leiðréttingu vegna misritunar í frumvarpinu.
Gerð er tillaga um 200 millj. kr. sérstakt viðbótarframlag á málefnasviði 27, Örorka og málefni fatlaðs fólks, málaflokki 27.30 um málefni fatlaðs fólks, sem ætlað er að fjármagna 25% kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs vegna þeirra NPA-samninga sem eru nú þegar í gildi. Öll nefndin stendur að baki tillögu þessari.
Á málefnasviði 9, Almanna- og réttaröryggi, er lagt til að veittar verði 20 millj. kr. til að fjármagna tvö stöðugildi við landamæragæslu á Akureyrarflugvelli.
Þá er gerð tillaga um 110 millj. kr. framlag til Landhelgisgæslunnar. Í frumvarpinu er lagt til að veitt verði 350 millj. kr. framlag til Landhelgisgæslunnar vegna viðgerðar á hreyflum flugvélarinnar TF-SIF þar sem fram kom tæring í þeim. Vegna viðgerðarinnar reyndist ekki unnt að taka þátt í haustverkefni á vegum Frontex með flugvélinni og er gert ráð fyrir að stofnunin hafi fyrir vikið orðið af áætluðum 110 millj. kr. rekstrarafgangi vegna þeirra verkefna. Gerð er tillaga um að Landhelgisgæslunni verði bætt sú fjárhæð.
Lagt er til að veitt verði 100 millj. kr. framlag á málefnasviði 18, Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál, til Kvikmyndasjóðs. Því er ætlað að gera sjóðnum kleift að taka þátt í verkefnum sem annars væri ekki unnt að ráðast í á árinu.
Lagt er til að veitt verði 150 millj. kr. framlag á málefnasviði 23, Sjúkrahúsþjónusta, vegna kostnaðar í tengslum við myglu á hjúkrunarheimilinu Hlíð. Sjúkrahúsið á Akureyri hefur orðið fyrir töluverðum kostnaðarauka vegna tíu öldrunarsjúklinga með gilt færni- og heilsumat sem eiga að vera á hjúkrunarheimilinu Hlíð en komast ekki í viðeigandi úrræði vegna myglunnar. Ofan á mikla nýtingu rúma hjá sjúkrahúsinu, skort á starfsfólki og mikil veikindi hjá stofnuninni auka þessar aðstæður á hjúkrunarþyngd. Kostnaðarauki þess stafar fyrst og fremst af launakostnaði hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og annarra heilbrigðisstétta, auk lyfjakostnaðar.
Þá er lagt til að veitt verði 83 millj. kr. framlag á málefnasviði 23, Sjúkrahúsþjónusta, til að kaupa nýjan skyggniröntgenbúnað á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Aðeins er eitt skyggniröntgentæki á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hefur komið upp alvarleg bilun í því sem gerir það m.a. að verkum að ekki er hægt að framkvæma púlserandi skyggningu. Þá virðist tækið ekki lengur uppfylla kröfur Geislavarna ríkisins. Talið er að ekki borgi sig að gera við tækið.
Á málefnasviði 25, Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta, er gerð tillaga um 80 millj. kr. til Ljóssins. Framlaginu er ætlað að tryggja að rekstur Ljóssins verði í jafnvægi á árinu. Öll nefndin stendur að baki tillögu þessari.
Lagt er til að framlög á málefnasviði 27, Örorka og málefni fatlaðs fólks, verði hækkuð um 800 millj. kr. til að fjármagna skattfrjálsa eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega til samræmis við eingreiðslur í desember síðastliðin ár. Kemur framlagið til viðbótar við heimild til að nýta eftirstöðvar á málefnasviðinu til að fjármagna eingreiðsluna. Fjárhæð eingreiðslunnar nemur 70.364 kr. á mann á árinu 2024.
Á málefnasviði 29, Fjölskyldumál, er lagt til að millifærðar verði 150 millj. kr. af fjárfestingu yfir á rekstur. Upphaflega var gert ráð fyrir að fjárfest yrði í úrræðum á Stuðlum en horfið hefur verið frá því vegna áforma um að leigja þess í stað tímabundnar vistunareiningar.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir og lagðar eru til í sérstökum þingskjölum.
Undir álitið rita sá sem hér stendur, Njáll Trausti Friðbertsson, Bryndís Haraldsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Sigþrúður Ármann. — Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.