155. löggjafarþing — 22. fundur,  13. nóv. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[15:32]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. framsögumanni fyrir ræðuna. Mig langaði aðeins að koma hingað upp og kannski fara ofan í einhverja liði hér undir. Sannarlega er það þannig að við ætluðum að reyna að fækka fjáraukum þegar við tókum í gagnið lög um opinber fjármál. Okkur hefur ekki tekist það en það er margt sem þar er að baki, ýmislegt sem gengið hefur á í samfélaginu sem hefur orðið til þess að við höfum þurft að bregðast við með fjáraukum og ljóst, sýnist mér, að það gæti þurft að stefna í það líka hjá komandi ríkisstjórn.

Ég er með sanni ánægð að sjá að það á að bæta hér upp áætlaðan halla vetrarþjónustunnar hjá Vegagerðinni. Ég held að það skipti miklu máli og við erum þá vonandi að horfa til þess í fjárlögunum sem verið er að vinna með líka að það sé þá fullfjármagnað miðað við a.m.k. þær tölur sem við erum með í dag og erum að bæta upp hér, að það sé ekki gert ráð fyrir lægri útgjöldum sem a.m.k. þessu nemur, eða jafnvel meira, bara í ljósi launahækkana. Ég er ánægð að sjá það og vona að það dugi. Veturinn á eflaust eftir að verða misjafn eins og gjarnan er, hvort sem það er fyrir eða eftir áramót.

Ég er líka ánægð að sjá hér að það á að bæta í Loftbrúna. Það er bara fyrst og fremst ánægjulegt að fólk er að nýta sér Loftbrúna. Þrátt fyrir að það kannski virki ekki í báðar áttir eins og stundum hefur verið gagnrýnt þá er þetta mikilvægt samgöngutæki fyrir þau sem búa langt í burtu og eiga oft í rauninni ekki annan kost en að nýta sér flugið. Ég er ánægð með það sem og að það er tryggt hér líka á milli Reykjavíkur og Húsavíkur.

Einnig er þetta með fjölskyldumálin. Það var samþykkt í ríkisstjórn fyrr í haust að leggja til við Alþingi að bæta í fjármuni, ekki síst til þess að fjármagna aðgerðir vegna ofbeldis barna. Það kemur við á mörgum stöðum, bæði hjá félagsmálaráðuneytinu, mennta- og barnamálaráðuneytinu og dómsmálaráðuneytinu ef ég man þetta rétt. Ég held að þetta sé eitthvað sem skiptir miklu máli þannig að vinnan geti farið vel af stað.

Varðandi svo skattfrjálsa eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega: Það er gott að sjá að það er hér inni. Það var líka rætt og samþykkt í ríkisstjórn að leggja það til og vert að minna á það og vekja athygli á því að þegar frumvarpið tekur gildi, nýja örorku- og endurhæfingarlífeyrisfrumvarpið, á næsta ári þá er þetta komið inn og ætti ekki að þurfa að standa í sérstakri aðgerð hérna á Alþingi vegna þess máls.

Síðan verð ég nú að koma hér inn á almennan varasjóð þar sem verið er að fjalla um kal- og afurðatjón bænda, af því að ég nefndi einmitt hér og sé að það er verið að leiðrétta þetta, þetta tilheyrir ekki bændum í Norðfirði heldur auðvitað bændum úti um allt land þar sem kal- og afurðatjón hefur orðið. Ég treysti því að þessar 230 milljónir sem þarna eru undir og fara til Bjargráðasjóðs, að verði þörfin meiri, af því að það liggur kannski ekki allt alveg fyrir akkúrat núna — það var alveg ljóst og hefur gjarnan verið greitt um eða eftir áramótin fram til þessa en við ákváðum, í ljósi þess hversu viðamikið tjónið var hjá mörgum bændum sem þurftu þá að fjármagna sig með kaupum á heyi, að greiða þetta út núna fyrr á árinu, í september, en bændur hafa áfram tækifæri til að skila inn gögnum eftir að í rauninni þessi tala kannski var lögð til.

Svo langar mig aðeins að fjalla um hérna kannski í framhaldi af þessu, ég ætla bara alveg að leyfa mér að gera það, að það er lagt til að fjárheimild verði millifærð hér í lið 12, málefnasvið 12.20, rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum, og það er verið að leggja til millifærslu af öðrum lið um 50 milljónir. Ég hef ekki fengið svar við því hvað þetta er, það hefur hvergi komið fram hvers vegna þetta er, þetta er bara vegna veikleika innan ársins en ekkert um hvað þetta snýst. Hver er veikleikinn? Það væri nú óskandi að nefndin vissi af því um hvað væri hreinlega að ræða þarna en léti ekki bara segja sér að þetta væri veikleiki.

Í því sambandi langar mig að nefna, og hef áhyggjur af því, að í ríkisstjórn í októberbyrjun þá fór ég sem ráðherra matvælaráðuneytisins með minnisblað þar sem var fjallað um kostnaðaráætlun landsáætlunar um útrýmingu riðu á Íslandi og þá þegar var komin beiðni til fjármálaráðuneytisins um tillögu í fjárauka um 65,5 millj. kr. vegna þess verkefnis vegna þess að kostnaðurinn varð ekki ljós fyrr en þessu lauk. Vinnunni lauk ekki fyrr en núna í júníbyrjun og þá lágu fyrir endanlegar kostnaðartölur. Það voru komnar tölur inn í fjárlög og fjármálaáætlun sem voru svona áætlun um það hvernig þetta gæti litið út. Þetta vantar upp á og það skiptir máli fyrir ríkissjóð líka og fyrir verkefnið að það nái fram að ganga. Þó að það sé ekki mikið eftir af árinu þá skiptir það máli að verkefnið verði ekki í skuld yfir á næsta ár. Þetta er gríðarlegur sparnaður fyrir ríkið bara til framtíðar litið, að ná utan um riðumálin öllsömul. Það er verið að gera ráð fyrir því að aflétta þessum höftum sem hafa verið vegna þessa máls jafnt og þétt og þá auðvitað minnka fjárútlát ríkisins til samræmis við það vegna þess að við þekkjum það alveg að það hefur kostað heilmikla fjármuni og annað slíkt fyrir utan auðvitað bara tilfinningalegt tjón fólks sem fyrir þessu verður.

Það fylgdi mjög góð greinargerð með þessu þar sem var rökstutt hvers vegna þetta þyrfti og á þessu ári, eins og ég sagði, vantar 65,5 milljónir og fyrir fjárlagaárið sem er að koma þá vantar 57,5 milljónir. Ég sé þetta ekki hérna inni og veit ekki hvort þessi millifærsla sem þarna um ræðir á eitthvað skylt við það eða ekki. Hún er a.m.k. ekki talan sem gert var ráð fyrir og ég minni á að það eru ekki varasjóðir inni á þessum málefnasviðum og þess vegna er í rauninni óskað eftir þessu við gerð fjáraukans.

Það er mikilvægt — það eru sirka 302 milljónir sem út af standa á tíma fjárlaga og fjármálaáætlunar — að þetta verði tryggt. Ég heyri á bændum að þeir séu svo bjartsýnir af því að það var nú gert ráð fyrir tíu ára áætlun, að þetta gæti orðið mun hraðara og það eru komnar fleiri arfgerðir sem verið er að nota. Eins og ég segi, mér finnst þetta skipta miklu máli og við höfum nú þegar varið hundruðum milljóna í bæði riðugreiðslur vegna niðurskurðar á fé og sauðfjárvarnargirðingar og guð má vita hvað. Ég bara verð að segja að það eru vonbrigði að ég sjái þetta ekki hérna inni en spyr um leið fyrir hvað þetta stendur, þessi millifærsla. Hver er þessi veikleiki í landbúnaðarhlutanum sem er verið að færa þarna á milli?

Af breytingartillögum sem meiri hlutinn gerir hér þá verð ég líka að segja að ég hef kannski ekki séð einhver gögn eða eitthvað slíkt sem styðja við þær breytingar sem hér eru lagðar til. En ég ætla ekkert að neita því að ég fagna því að sjá að það á að fjármagna stöðugildi við landamæragæsluna á Akureyri. Ég held að það veiti ekkert af. Nú er flugstöðin og flugstöðvarbyggingin komin í nánast fulla notkun, aðskilið innanlandsflug og millilandaflug sem er afskaplega gott og gaman frá því að segja, þó að það hafi nú verið leiðinlegt fyrir þá sem áttu innanlandsflug í gær, það féll niður, en það var hægt að fljúga frá Manchester til Akureyrar þannig að það hefði kannski verið ráð að fljúga frá Keflavík til Manchester og þaðan heim, en það er nú eins og það er, og kannski ódýrara meira að segja. En þetta er bara fagnaðarefni vegna þess að það var búið að berjast líka mikið fyrir því að þetta yrði að veruleika. Það skiptir landsbyggðirnar miklu máli að hafa flug á fleiri en einum stað þannig að ég fagna þessu að sjálfsögðu. Þetta þarf að klárast og við sem þekkjum vel til fyrir norðan vitum að það er ekki borð fyrir báru hjá lögreglunni á Akureyri til að bæta þessu ofan á.

Síðan er hér líka verið að fjalla um sjúkrahúsið og Hlíð og eitthvað. Við sem höfum fylgst með því vitum að það eru talsverðar áskoranir búnar að vera þar, svo vægt sé til orða tekið, þannig að það er gott, það veitir ekki af inn í hjúkrunarþjónustuna að bæta þar upp það viðbótarálag sem augljóslega hlýst af slíkum breytingum sem verða þarna að vera.

Ég ætla líka að segja hérna varðandi Ljósið, sem ég veit að skiptir okkur máli í ríkissjóði ekki síst, sú þjónusta sem þar er veitt skiptir máli og líklega sparar það í sjálfu sér ríkinu mikla fjármuni þegar upp er staðið.

En ég vildi bara koma hér og segja þetta og fylgja þessu eftir af því að mér er þetta mikið hjartans mál, þessi riðumál, sem ég legg kannski fyrst og fremst áherslu á í þessu og vildi vita í rauninni um hvað þetta snýst, þessar 50 milljónir þarna. Það væri áhugavert að vita það. Ég hef ekki getað fengið svör við því alla vega enn þá.