fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Við erum að fjalla hér um frumvarp til fjáraukalaga og tókum það fyrir á fundi fjárlaganefndar. Ég ætla að byrja á því að fagna því sem kom fram líka hjá Andrési Inga Jónssyni um NPA-samningana. Jú, það kom þarna inn hjá okkur breyting til að reyna að ná upp í það gat, það sem vantar, sem voru um 270 milljónir eins og kom fram hjá honum. Það er ótrúlega sorglegt ef við förum að hugsa um það hverjir það eru sem nýta sér NPA-samningana. Þetta er illa fatlað fólk sem þarf nauðsynlega á þeim að halda til þess að vera ekki rúmfast allan sólarhringinn og hafa annars eiginlega engan rétt á að lifa nokkurn veginn mannsæmandi lífi utan stofnunar. Það er oft þyngra en tárum tekur að vita af því hvernig bæði sveitarfélög og ríkisstjórnir hafa komið fram í því máli vegna þess að það hefur verið talað um að þetta fólk sé kostnaður og þeir hafa einhvern veginn hent boltanum á milli sín og ekki gert sér grein fyrir því að þeir eru að tala um okkar viðkvæmasta fólk og láta líta út fyrir að bæði halli á málefninu og vandamálin í kringum málefnið séu því að kenna. Það er mjög ljótt að segja um þetta fólk að það sé kostnaður þegar við erum að tala um sjálfsögð mannréttindi þeirra til að lifa mannsæmandi lífi. Þetta ætti ekki að vera vandamál ef við værum búin að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks og viðauka hans. Þá værum við ekki í þessari stöðu. og gætum ekki eiginlega leyft okkur að haga okkur svona gagnvart þessum einstaklingum sem þarna eru undir. Og eins og við höfum líka orðið vör við er það ljótur blettur á þessu þegar viðkomandi er kannski rétt um fertugt, ósjálfbjarga og er jafnvel fluttur hreppaflutningum út á land í stað þess að fá NPA-samning. Ég er alveg með það á hreinu að ekkert okkar hér inni á þingi myndi vilja vera í þessari aðstöðu, að standa frammi fyrir því að þurfa virkilega á þjónustu að halda og fá hana ekki, vegna þess að það á ekki að vera boðlegt. Við eigum að vera komin lengra og við eigum að sjá til þess að gera þetta þannig að viðunandi sé.
Síðan er hitt málefnið sem mig langar að taka upp hérna og ég fagna því að hér inni eru 800 milljónir sem bætast ofan á það sem fyrir er þannig að það verða um 1,7 milljarðar og eiga að nýtast í jólabónus svokallaðan fyrir öryrkja. Það er hið besta mál, en samt á einhvern hátt sorglegt að við skulum þurfa að gera þetta ár eftir ár, að setja inn svona upphæð, þessar 70.000 kr., og við þurfum að gera það skatta- og skerðingarlaust bara til þess að þessi upphæð fari að fullu í vasa þeirra sem virkilega þurfa á að halda. Það er því miður annar stór hópur þarna úti, eldri borgarar, sem hefur ekki fengið neitt. Í því samhengi hefur líka oft verið bent á að þeir eru með orlofsuppbót og desemberuppbót en þessi orlofs- og desemberuppbót, eins sorglegt sem það er, er ekki að skila sér í vasa þessara einstaklinga. Ég mun endurtaka það hvað eftir annað hér í þessum ræðustól að ég skil ekki þann tilgang að segja við fólk: Nú færðu desemberuppbót og orlofsuppbót en við ætlum að skerða hana ef þú hefur aðrar tekjur eða ef þú hefur bara lífeyristekjur. Lífeyristekjurnar eru lögþvingaður sparnaður og hann á ekki að nota til klekkja fjárhagslega á fólki og sérstaklega þegar verið er að tala um eitthvað eins og orlofs- eða desemberuppbót. Við vitum það sjálfir, þingmenn, að við fáum orlofsuppbót og við fáum desemberuppbót. Þetta er bara eins og að það væri sett í lög að ef við fengjum eitthvað borgað fyrir nefndarstörf þá yrði það notað til þess að skerða orlofs- eða desemberuppbót okkar. Til hvers værum við þá að búa til orlofs- og desemberuppbót ef tilgangurinn með því er að búa til uppbótina en taka hana svo til baka á einhvern undarlegan hátt?
Þetta sýnir okkur svart á hvítu hvers lags kerfi hefur verið byggt upp í almannatryggingakerfinu, endalausar gildrur, vísvitandi og viljandi blekkingar vegna þess að þetta er ekkert annað. Við eigum að vera orðin, hvað skal segja, þróaðri, mannúðlegri og vera ekki að setja fólk í þessa aðstöðu.
Ég vona heitt og innilega, eins og kom hérna fram að vísu, að það verði horft á starfsgetumat sem á að taka gildi 1. september 2025 og þá sé þetta búið. Það er bara alls ekki rétt vegna þess að við erum ekki farin að átta okkur á afleiðingum þess. Ég á eftir að sjá það að það muni skila sér skatta- og skerðingarlaust til þessa hóps í desember á næsta ári ef bara á að fara eftir þessu starfsgetumati vegna þess að það hefur ekkert í sjálfu sér að gera með þessa upphæð. Hún hefur eingöngu verið sett inn til þess að hún skili sér að fullu til þeirra sem virkilega þurfa á að halda fyrir jólin. Það sorglega er kannski líka, eins og ég hef komið inn á, að við höfum ekki náð því að gera það sama fyrir eldri borgara. Við erum með hóp eldri borgara sem er á lægsta ellilífeyri og hefur ekkert annað og svo er þetta undarlega fyrirbrigði þar sem er greitt 10% minna og það er króna á móti krónu skerðing á allar tekjur sem þau fá. Ég hef aldrei getað skilið af hverju við tókum upp krónu á móti krónu skerðingar aftur. En einhverra hluta vegna fannst einhverjum það rosalega sniðugt og setti það á. Ef við erum á annað borð með kerfi þar sem er lágmarksellilífeyrir þá er lágmarksellilífeyrir, 10% minna en lágmarksellilífeyrir er einhver allt önnur Ella og á ekki að eiga sér stað að við séum að að setja það í lög.
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en ég vona heitt og innilega að þessi jólabónus, 70.000 kr., verði greiddur út eins fljótt og auðið er og fólk muni fá hann fyrir jól.