fjáraukalög 2024.
Frú forseti. Mig langaði bara aðeins að koma upp undir þessari umræðu um fjárauka fimm fyrir árið 2024. Ég var búinn að lofa formann nefndarinnar því að verða ekki langorður og ætla að standa við það, enda get ég bara tek ég undir það sem hv. formaður nefndarinnar fór hér yfir áðan og það sem hefur komið fram hjá nefndarmönnum í fjárlaganefnd. Ég tek undir það að þetta eru sérstakir tímar. Það er skrýtið að vera að afgreiða fjáraukalög í þessu umhverfi. Það krefst öðruvísi nálgunar kannski en menn hafa verið að nota hér á Alþingi undanfarin misseri. Ég vonast bara til þess að okkur muni farnast vel í vinnunni í fjárlaganefnd við fjárlögin sem eru hér á dagskrá fljótlega á sama hátt og okkur tókst að klára þessi fjáraukalög sem nefndin afgreiddi í þokkalegri sátt, þótt að sjálfsögðu geti menn greint á um ákveðna hluti í þessu nefndaráliti og fjáraukanum. Klárlega verður það eins í fjárlögunum.
Mig langaði hins vegar bara örlítið að koma hingað upp af því að hv. þm. Andrés Ingi Jónsson var að velta fyrir sér fjármagninu eða þessari hugmynd um landamæralöggæslu til handa lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra, hvort hún væri úr lausu lofti gripin. Ég fór í tölvuna og staðfesti grun minn að í umsögn lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um þetta fjáraukalagafrumvarp er lagt til að þessar 20 milljónir komi þarna inn út af þessum sértæku verkefnum sem hafa aukist alveg gríðarlega, sér í lagi með þessu nýja millilandaflugi og auknum komum skemmtiferðaskipa inn á Eyjafjörðinn, þannig að þetta mál er í þingskjölum og þessi beiðni. Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra óskaði reyndar eftir 380 milljónum en nefndin sá sér ekki kleift að verða við því, enda höfum við haft þá reglu að vera ekki mikið að fara inn í rekstur einstakra stofnana. En menn sjá kannski, eins og í þessu tilfelli þar sem er verið að bregðast við, leyfi ég mér að segja, nánast ófyrirséðum kostnaði vegna nýrra verkefna stofnana, að það horfir öðruvísi við heldur en að fara inn í rekstrargrunninn og laga til í rekstrinum. Mig langaði bara að koma hingað upp örstutt, eins og ég segi, og þakka fyrir góða vinnu í fjárlaganefndinni varðandi þennan fjárauka og vildi koma þessari ábendingu áleiðis, að þetta er ekki þannig að þetta hafi dottið af himnum ofan heldur er þetta nú í umsögn lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um þetta frumvarp ásamt öðrum beiðnum. Eins og ég hef farið yfir bæði hér og við fórum vel yfir í nefndinni þá sáum við að þarna var um einstakt verkefni að ræða sem okkur fannst eðlilegt að koma til móts við að þessu sinni. En að sjálfsögðu þarf lögreglustjórinn að vera í samstarfi og samtali við dómsmálaráðuneytið í framtíðinni um að fá þessi stöðugildi inn í rekstur embættisins þannig að fjárlaganefnd þurfi ekki á næsta ári að grípa inn í með þessum hætti.