155. löggjafarþing — 22. fundur,  13. nóv. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[16:02]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að hv. þingmaður segir mér fréttir vegna þess að ég er hérna með erindasíðu 297. máls fyrir framan mig og þar eru fjögur erindi. Það er kynning frá ráðuneytinu, það er umsögn frá Innheimtumiðstöð rétthafa, það er umsögn frá Landhelgisgæslu Íslands og það er umsögn frá ÖBÍ réttindasamtökum. Máski hefur lögreglustjóraembættið skilað inn umsögn við eitthvert annað mál þaðan sem hugmyndin hefur síðan ratað inn í þetta mál, það kann að vera, líkt og gerðist með Ljósið sem skilaði umsögn við fjárlagafrumvarpið. En undir þessu fjáraukalagafrumvarpi er engin slík umsögn þannig að hv. þingmaður kannski leiðir mig hér í allan sann í andsvari.