155. löggjafarþing — 22. fundur,  13. nóv. 2024.

fjáraukalög 2024.

297. mál
[16:04]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Af hverju er ég að fara að mæla fyrir breytingartillögu við frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2024 þegar verið er að vinna í því núna að við getum hugsanlega tekið utan um þetta öll saman? En eins og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson benti á áðan þá gengur þetta nú ansi hratt og skringilega fyrir sig hér á Alþingi þegar við erum meira og minna öll hlaupandi út um allar koppagrundir í kosningabaráttu. En við mælum hér fyrir breytingartillögu við 2. umræðu og ég ítreka það að ég hef heyrt velvilja og góðan vilja nánast alls staðar og ekki nánast alls staðar, bara alls staðar þar sem ég hef rætt við þingmenn og formenn um þetta mál þannig að ég er bjartsýn á að það nái fram að ganga og ég þurfi ekki að fylgja því eftir allt til loka heldur eigum við eftir að sameinast um það öll sem eitt og sýna þá fallegu ásýnd sem við getum sýnt af okkur þegar við höldumst í hendur og sýnum vilja til góðra verka.

Tillagan er þannig að við fjáraukalög bætist nýtt málefnasvið og nýr málaflokkur, 28 Málefni aldraðra og 28.30 Þjónusta við aldraða og aðrar greiðslur; a. rekstrartilfærslur 134,8 millj. kr. og b. framlag úr ríkissjóði 134,8 millj. kr.

Í greinargerð með breytingartillögunni segir m.a., með leyfi forseta:

„Lagt er til að veitt verði framlag á málefnasviði 28 til að greiða megi 70.364 kr. eingreiðslu í desember til ellilífeyrisþega sem fá greiddan óskertan ellilífeyri almannatrygginga. Samkvæmt nýjustu tölum frá TR eru 1915 manns með óskertan ellilífeyri almannatrygginga þar sem tekjur þeirra eru lægri en frítekjumörk. Eingreiðsla þessi, sem skal innt af hendi eigi síðar en 31. desember 2024, skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna og verður því skattfrjáls.“

Þetta er sanngirnismál, þetta er réttlætismál. Það hefur glatt mig mikið að finna að það viðurkenna í rauninni allir meira og minna þetta hér og nú. Staðreyndin er sú að ef ekki þá þykir mér miður að þurfa að fylgja þessu eftir alla leið og koma með þetta til atkvæðagreiðslu og nafnakalls og alls þess, tvær mínútur í kosningar. Við höfum gert með okkur hér ákveðið samkomulag á Alþingi að vera ekki að lengja í þingstörfunum meira en nauðsyn krefur og reyna að ganga í takt og við viljum svo sannarlega gera það í Flokki fólksins. En þetta er okkar hjartans mál og hefur alltaf verið og ég get ekki betur heyrt, eins og ég segi, frú forseti, að þetta sé hjartans mál allra annarra í þinginu og ég ætla að vona að það sé rétt skilið og að við fáum í rauninni alla aðra til að leggjast á árar sameiginlega og róa þessu réttlætismáli sameiginlega og farsællega í höfn. Áfram veginn. Breytingartillagan er hér. Það sem við erum að tala um eru þeir sem fá greiddan óskertan ellilífeyri almannatrygginga. Það liggur náttúrlega alfarið á borðinu að þetta eru tekjur sem eru lægri en frítekjumörk. Það liggur algerlega ljóst fyrir að hér er um að ræða einstaklinga sem búa við mestu fátækt hvað lýtur að útborguðum launum á mánuði, mestu fátækt í samfélaginu. Þetta eru þau sem fá það lítið útborgað að þau í rauninni gera lítið annað en að skrimta og geta ekki tekið þátt í akkúrat einu eða neinu umfram það lífsnauðsynlegasta. Fyrir þau eru jólin tími kvíða eins og hjá fólkinu okkar sem er á örorku. Þannig að ég segi bara áfram veginn og ég vona svo sannarlega að skynjun mín sé rétt og að utan um málið verði tekið af hug og hjarta og það er mín bjargfasta trú.