155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[11:25]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Ég þakka framsögumanni og formanni nefndarinnar fyrir framsöguna með nefndaráliti og ég get tekið undir með hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni að starf nefndarinnar var um margt gott og við náðum að lokum fram niðurstöðu sem ég held að við getum flest unað nokkuð sátt við.

Líkt og fram hefur komið ritaði ég undir þetta nefndarálit með fyrirvara og ég vildi þess vegna koma hér upp í stutta ræðu til að gera grein fyrir honum. Ég vil taka það fram að mér finnst gríðarlega mikilvæg breyting sem hér er verið að leggja til, sem er sú tillaga að þau sem nú fá greiðslur samkvæmt lögum um viðbótarstuðning við aldraða fái hækkun á frítekjumarki í samræmi við þá hækkun sem lögð er til í frumvarpinu sjálfu á almennu frítekjumarki ellilífeyrisþega. Þetta kemur til með að skipta mjög miklu máli fyrir þann hóp aldraðra sem ekki hefur full réttindi í kerfinu og það skiptir máli að frítekjumark þessa hóps verði hækkað með sama hætti og hjá öðrum.

Svo vil ég líka nefna að í þessu frumvarpi er verið að leggja til 2,5% hækkun á kolefnisgjaldi, olíugjaldi, almennu og sérstöku kílómetragjaldi og almennu og sérstöku bensíngjaldi og ég styð það, enda er það óhjákvæmileg afleiðing af þeirri ákvörðun meiri hluta nefndarinnar að vísa frumvarpi um kílómetragjald af ökutækjum til ríkisstjórnar og við munum ræða það hér síðar í dag.

Mér finnst þó mikilvægt að það komi fram að í vinnslu nefndarinnar á þessum málum lagði ég ítrekað áherslu á það að mér þætti mikilvægt að sjá fyrir heildarmyndina þegar væri verið að leggja til breytingar á öllum þeim frumvörpum sem til umræðu voru í nefndinni og það að kílómetragjaldinu væri í rauninni vísað frá og til ríkisstjórnar hefði áhrif á tekjuöflun ríkissjóðs. Það skiptir máli að ræða þetta líka í samhengi við þetta frumvarp, svo og hinn bandorminn sem við ræðum seinna í dag, því að þó svo að málin séu klippt upp í ólík frumvörp þá eru tekjur og gjöld ríkisins þegar upp er staðið samhangandi og mynda eina heild. Mér fannst ekki nógu góð heildarmynd á þessu í vinnu nefndarinnar. En mér skilst að það sé verið að ná betur utan um þetta og við munum fjalla síðar um það, áður en þessu þingi lýkur. En þetta var í algjörri óvissu þegar þetta nefndarálit var afgreitt út.

Að þessu sögðu ítreka ég það að ég er með á þessu nefndaráliti og ég vona að þessar tillögur sem hér eru lagðar fram verði að lokum samþykktar.