155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[11:30]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mig langar hér að fá að taka undir orð Gísla Rafns Ólafssonar um samstarfið í nefndinni núna síðustu daga. Við búum auðvitað við það að hér er ekki meirihlutastjórn að störfum. Það breytir og hefur breytt verklaginu og vinnulaginu í nefndunum, mér til mikillar ánægju, verð ég að segja. Það hefur verið talsverður samstarfsvilji í nefndinni til að þoka málum áfram því að okkur ber jú að klára fjárlagafrumvarpið áður en við rjúfum þing því að það er ekkert vitað í raun og veru hvenær ný ríkisstjórn tekur til starfa eftir kosningar. Þetta vekur kannski bara upp spurningar um hvort það sé ekki kominn tími til að hér á Íslandi förum við að viðhafa kannski annað stjórnarmynstur heldur en við höfum haft í gegnum tíðina, hvort það gæti ekki bara verið orðið möguleiki að hafa hér minnihlutastjórnir sem njóta stuðnings einhverra ákveðinna afla sem verja þær vantrausti, af því að maður hefur nú svo sem á mínum stutta tíma hér á þinginu upplifað það að meiri hlutinn hefur bara tekið við fullt af tillögum og þeim hefur bara verið stungið ofan í skúffu en við aðstæður sem þessar hefur verið verulegur samstarfsvilji til að reyna að þoka málum áfram. Það er ekki hægt að segja að við séum öll bara hrópandi glöð yfir öllu því sem hér er að gerast en við erum þó alla vega komin á þann stað að við getum klárað, held ég, fjárlagafrumvarpið og farið þá í raunverulega kosningabaráttu með nokkuð góða samvisku yfir því að við höfum þó alla vega klárað þau verkefni sem okkur bar skylda til að gera áður en við hófum þessa eiginlegu kosningabaráttu.