breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Herra forseti. Eins og kemur hér fram í ræðum hv. þingmanna þá erum við að vinna málin í sérstöku umhverfi í dag og það á bæði við um efnahags- og viðskiptanefnd og fjárlaganefnd og fleiri nefndir þingsins. Ég vildi bara rétt koma upp og fagna því þar sem ég tel hafa verið ákaflega vel að verki staðið, þegar var farið í að leyfa það að greiða séreignarsparnað inn á fasteignalán 2014 eftir kosningar 2013. Ég tel þetta afar vel heppnaða aðgerð sem farið var í á sínum tíma og hér vildi ég koma upp því ég hef talað mjög fyrir því að það úrræði yrði framlengt. Ég fagna því mjög að það sé gert hér. Hv. efnahags- og viðskiptanefnd leggur það til hér í nefndaráliti sem liggur fyrir þinginu. Ég tel raunverulega að það sé varla til önnur eins aðgerð sem hafi heppnast betur í húsnæðismálum hjá okkur síðasta áratuginn og nýtist almenningi vel og gríðarlega margt jákvætt sem fylgir þessu.
Það sem nýtt þing og ný ríkisstjórn þarf að huga að eftir kosningar er þá framhaldið og hvernig menn sjá þennan stuðning fyrir sér á komandi árum. Við vitum að fyrir nýja kaupendur eða þá sem hafa ekki átt fasteign í fimm ár er þetta í gildi í dag til lengri tíma en þetta almenna úrræði snýr að hinum sem hafa verið að nýta sér þetta síðan 2014 í mismiklum mæli. Ég hvet alla til þess sem hafa tök á að nýta sér þetta úrræði að nýta sér það. Þetta er gríðarlega gott.
Ég vildi líka bara rétt koma inn á það sem snýr að leiðangursskipunum. Hér er haldið áfram að veita tollfrelsi sem snýr að þessum svokölluðu leiðangursskipum sem sigla við ströndina. Það er nú bara þannig að á litlum stöðum, í kauptúnum og þorpum vítt og breitt um landið, eru þessi leiðangursskip gríðarlega mikilvæg fyrir hafnarsjóði viðkomandi svæða, geta verið 40–70% af rekstri hafnanna og þetta gerir hafnir vítt og breitt um landið raunverulega sjálfbærar. Þetta þarf að skoða í þessu stóra samhengi. Þetta hefur gjörbreytt stöðunni víða. Það er líka þannig að á köldum ferðaþjónustusvæðum eins og við þekkjum þar sem leiðangursskipin stoppa víða í höfnum þá hefur þetta haft verulega góð áhrif á viðkomandi svæði í atvinnulegu tilliti, hefur líka styrkt ferðaþjónustu á viðkomandi svæðum og þetta þarf allt að hafa í huga. Ég tel líka mikilvægt, og það kemur fram í umsögn þessara aðila sem reka leiðangursskipin að þeir eru til í að skoða að taka upp svokallað innviðagjald. Ég held að það standi í umsögninni að það mætti byrja 1. janúar 2026, kannski 500 kr. á dag, það megi síðan hækka í hærri upphæðir á árunum þar á eftir. Þetta á að gera. Þetta er, held ég, lausnin í málinu og það sem við eigum að einbeita okkur að ná einhverri lendingu í. Þetta skiptir minna máli kannski í stærstu höfnunum sem hafa miklar tekjur af skemmtiferðaskipunum. En það er algerlega nauðsynlegt fyrir minni staði, minni hafnarsjóði vítt og breitt og gagnvart ferðaþjónustunni að skoða þetta umhverfi. Mig minnir að þingið hafi ákveðið að veita þetta tollfrelsi 2012 til að reyna að komast inn á þennan markað. Það úrræði hefur gengið vel en það hefur aldrei verið stillt almennilega af út frá gjöldum og tekjum. Það ber að vinna í því en reynum að gera það með þeim hætti að þetta verði ekki einhver óskapnaður og mikið flækjustig heldur gera þetta með einföldum hætti, höfum einfalt regluverk í kringum þessa hluti. Það er eðlilegt að ríkið hafi einhverjar tekjur af þessu. En förum þessa leið sem snýr að því að byggja upp innviði í kringum innviðagjaldið og vinnum málið þannig.
Það ber að fagna því að við séum komin með þetta mál hérna inn í þingsal og ræða bandorm tvö og önnur tengd mál, en ég vildi bara rétt koma hér upp og leggja áherslu á séreignarsparnaðarleiðina, að það sé lengt í henni, og síðan það sem snýr að þessum svokölluðu leiðangursskipum fyrst og fremst sem sigla hringinn í kringum landið, kannski viku, tíu daga ferðir. Þau skipta verulegu máli fyrir okkar minnstu byggðir við ströndina, fámennustu byggðir við ströndina hringinn í kringum landið. — Ég hef lokið máli mínu, forseti.