155. löggjafarþing — 23. fundur, 14. nóv. 2024.
afbrigði.
Forseti vill geta þess að áhöld eru uppi um það hvort breytingartillagan samræmist ákvæðum stjórnarskrár og þingskapa um að mál fái þrjár umræður. Forseti hyggst engu að síður láta afbrigðaatkvæðagreiðsluna fara fram en telur rétt að vekja athygli hv. þingmanna á því að á þessu kann að leika vafi, í ljósi þeirra ákvæða sem kveða á um að mál þurfi þrjár umræður í þinginu og fræðiskrifa þar um.