155. löggjafarþing — 23. fundur, 14. nóv. 2024.
afbrigði.
Herra forseti. Meginreglan er sú að við höfum alltaf verið á grænu ljósi hvert með öðru, sérstaklega þegar við erum að greiða atkvæði um afbrigði, en nú hefur sú staða teiknast upp hér í þinginu að hér hefur verið gert ákveðið heiðursmannasamkomulag og t.d. þessi afbrigði sem hér er verið að leggja upp eru gjörsamlega eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég get engan veginn tekið undir það og mun þar af leiðandi vera á rauðu.