155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

afbrigði.

[11:53]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það kemur mér á óvart að þingheimur líti út fyrir að ætla að fella það að hleypa breytingartillögu í birtingu. Ég man ekki eftir að hafa séð það gerast áður.

Tillagan er tvíþætt. Aðaltillagan er sú að á næsta ári verði óheimilt að gefa út veiðileyfi á hval í ljósi þess að starfandi matvælaráðherra talar eins og hann telji sig hafa umboð til að ákveða hvalveiðar til lengri framtíðar. Alþingi þarf að sýna honum að sú ákvörðun þarf að eiga sér stað hér innan þingsalar. Með þessari ársfrestun á mögulegum hvalveiðum gefst næsta þingi svigrúm til þess.

Varatillagan er síðan að hækka veiðigjald á langreyði töluvert, úr 50 þúsundum í 50 milljónir á hverja langreyði til að endurspegla þann samfélagslega og umhverfislega kostnað sem þessar ómannúðlegu veiðar valda. Ég hefði haldið að Alþingi Íslendinga hefði dug í sér til að ræða tillöguna, (Forseti hringir.) til að ræða efnislega afstöðu sína til tillögunnar frekar en að setjast á rauða takkann hér þegar kemur að því hvort eigi að hleypa þessu skjali í birtingu. (Forseti hringir.) Hvaða heigulskapur er þetta hjá Alþingi? Hvaða aumingjaskapur er það að geta ekki tekið umræðu um atvinnugrein (Forseti hringir.) sem starfandi matvælaráðherra talar eins og hann ætli að misnota aðstöðu sína til að hleypa áfram á grænu ljósi? (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Hvar er dugurinn til að ræða mál (Forseti hringir.) frekar en að fela sig á bak við rauða hnappinn þannig að þau komist ekki í umræðu?

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að þegar hv. þingmenn gera grein fyrir atkvæði sínu hafa þeir til þess eina mínútu.)