155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

afbrigði.

[11:55]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mér finnst réttur þingmanna til að leggja fram breytingartillögur gríðarlega mikilvægur og gríðarlega sterkur. Við erum hins vegar með nefndir sem eru að vinna að málum og því finnst mér það alltaf sérkennilegt þegar komið er með tillögu sem ekkert hefur verið rætt um í nefnd sem er þó að fjalla um mál. Það finnst mér vera ákveðinn heigulsháttur hjá hv. þingmanni þótt ég geri ekki athugasemd við það að hann geti lagt fram tillögu. Ég skal ekki segja hvort málaumbúnaðurinn standist þingsköp. Mér finnst eðlilegt að þegar við erum með breytingartillögur sem lúta ekki bara að einhverju tæknilegu sem við sjáum að þarf að laga þá ræði maður svona hluti í nefnd þar sem fulltrúar allra flokka eiga sæti við borðið og ræða kosti og galla tillagnanna. Það finnst mér vera besta málsmeðferðin en geri þó ekki lítið úr réttinum til að leggja fram tillögur.