155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

afbrigði.

[11:56]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mér finnst það eiga að vera meginregla að við heimilum hér framlagningu mála og að við getum greitt fyrir afbrigðum og sérstaklega þegar við erum nú komin svona nálægt þinglokum. En ég staldra mjög við orð forseta við þessa atkvæðagreiðslu þar sem hann orðar beinlínis af forsetastóli efasemdir um að þessi málatilbúnaður standist stjórnarskrá. Þegar svo er og forseti sjálfur greiðir atkvæði gegn afbrigðum þá finnst mér það gefa okkur tilefni til að staldra við. Ég spyr virðulegan forseta hvort hann ætli að veita þinginu frekari leiðsögn um það hvaða nálgun hann telji eðlilegast að sé veitt hér þegar um er að ræða mál sem orka tvímælis, hvort það þyrfti sannarlega að fá þrjár umræður í þinginu en sé ekki lagt fram hér sem breytingartillaga við mál. Mér finnst það skipta máli óháð því hvert inntak eða innihald tillögunnar er að við virðum hér eðlilegan framgang efnis málsins við þinglega meðferð.