afbrigði.
Forseti. Ég held við séum öll sammála um að við viljum að umræður og vinnubrögð hér í þingsal fari fram samkvæmt stjórnarskrá og þingsköpum. Ég verð hins vegar að lýsa því yfir að mér þykir það miður hversu mikið þeirri reglu að mál skuli rædd við þrjár umræður hér í þinginu er beitt af mikilli hentisemi af hálfu þessa þings. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þessi umræða kemur upp. Það þykir í lagi þegar meiri hlutinn er sammála tillögunni en ekki í lagi þegar hann er það ekki. Það er sláandi að sjá að það eigi að fella það yfir höfuð að ræða þetta, ekki síst í ljósi þess að þrátt fyrir áhyggjur virðulegs forseta af aðaltillögunni er hér m.a. varatillaga sem ákaflega erfitt er að halda því fram að standist ekki stjórnarskrána ef aðrar breytingartillögur við þetta frumvarp gera það á annað borð. Önnur rök sem hafa komið fram hér gegn þessari tillögu eru mun frekar tilefni til að hafna henni heldur en að hafna því yfir höfuð að hún verði rædd hér í þingsal. Mér þykir þetta miður.