Mannréttindastofnun Íslands.
Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Mannréttindastofnun Íslands. Frumvarpið flyt ég sjálfur en málið hefur áður verið kynnt fyrir formönnum þingflokka og gagnvart forsætisnefnd.
Í frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að gildistöku laganna um Mannréttindastofnun Íslands verði frestað til 1. júlí 2025. Þannig verði félags- og vinnumarkaðsráðuneyti falið að starfrækja réttindagæslu fatlaðs fólks, sem færast átti frá ráðuneytinu til nýrrar stofnunar, fram að þeim tíma með það að markmiði að ekki verði rof á þjónustu við skjólstæðinga réttindagæslunnar. Í öðru lagi er lagt til að kveðið verði á um að Alþingi kjósi í stjórn stofnunarinnar svo fljótt sem verða má og eigi síðar en í mars 2025. Þá er lagt til að skrifstofustjóra Alþingis verði heimilt að gera nauðsynlegar ráðstafanir áður en kosið verður til stjórnar til að stofnunin geti tekið til starfa á tilsettum tíma.
Mikilvægt er að tryggja að ekki verði rof á þeirri mikilvægu þjónustu við skjólstæðinga réttindagæslu fatlaðs fólks við flutning verkefnisins frá Stjórnarráðinu til nýrrar stofnunar. Í ljósi þess að ekki hefur verið kosið í stjórn stofnunarinnar og vegna tilkynningar um þingrof 17. október sl. er lagt til að gildistöku laganna verði frestað svo að meiri tími gefist til undirbúnings. Lagt er til að í ákvæði til bráðabirgða III verði tekið sérstaklega fram að Alþingi skuli kjósa í stjórn stofnunarinnar svo fljótt sem verða megi og eigi síðar en í mars 2025. Kosning í stjórn er forsenda fyrir því að unnt sé að undirbúa stofnun þessarar nýju stofnunar. Þá er einnig lagt til að skrifstofustjóra Alþingis verði heimilt að gera nauðsynlegar ráðstafanir til undirbúnings þess að stofnunin geti tekið til starfa 1. júlí 2025, svo sem með því að útvega stofnuninni í húsnæði, tæki og búnað og gera aðrar nauðsynlegar ráðstafanir.
Í lögum um Mannréttindastofnun Íslands er kveðið á um að hlutverk réttindagæslumanna fatlaðs fólks gagnvart persónulegum talsmönnum færist til sýslumanns. Sýslumaður staðfesti þar með val á persónulegum talsmönnum og hafi eftirlit með störfum þeirra. Unnið er að yfirfærslu þessa verkefnis og því er ekki talin ástæða til að fresta gildistöku þeirra ákvæða sem þetta atriði varða.
Í ákvæði til bráðabirgða II í lögunum er gert ráð fyrir niðurlagningu starfa réttindagæslumanna og annars starfsfólks réttindagæslu fyrir fatlað fólk frá og með 1. janúar 2025. Með lagasetningunni 22. júní sl. um niðurlagningu starfanna varð því ákveðin hreyfing á starfsmannahaldi réttindagæslunnar. Er því lagt til í frumvarpinu að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, IV, um skyldu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis til að tryggja samfellu í þjónustu af hálfu réttindagæslu við fatlað fólk og heimildir til að gera tímabundnar ráðstafanir í því skyni. Þannig er lagt til að ráðuneytið geti ráðið starfsfólk tímabundið til að sinna réttindagæslunni sem og að því verði heimilt að gera tímabundinn þjónustusamning við Mannréttindaskrifstofu Íslands sem hefur t.d. sinnt ráðgjöf við innflytjendur og í miðstöðvum fyrir brotaþola ofbeldis. Loks er lagt til nýtt ákvæði til bráðabirgða, V, til að árétta að öll gögn sem varða störf réttindagæslu fatlaðs fólks skuli færast til Mannréttindastofnunar Íslands við gildistökuna sem þá er gert ráð fyrir að verði 1. júlí 2025.
Hæstv. forseti. Ég hef lokið við að greina frá meginefni frumvarpsins og ég legg til að mál þetta gangi til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að lokinni þessari umræðu.