Mannréttindastofnun Íslands.
Frú forseti. Eins og flestum í þessum sal er kunnugt um þá voru hér afgreidd og samþykkt lög 22. júní síðastliðinn um stofnun Mannréttindastofnunar Íslands. Þau höfðu þá fengið ítarlega umfjöllun og undirbúning allan síðasta vetur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Eins og flestum hér er líka kunnugt um þá lá fyrir að það væri forgangsverk að tilnefna og kjósa í stjórn nýrrar stofnunar þannig að hún gæti tekið til starfa á haustmánuðum og undirbúið stofnun mannréttindastofnunarinnar sem til stóð og til stendur enn þá, nema þetta frumvarp verði samþykkt, að verði formlega stofnuð 1. janúar næstkomandi.
Ég ætla ekki að fara að rekja efnislega nauðsyn þess að koma á fót sjálfstæðri mannréttindastofnun. Við ræddum það mjög ítarlega hér á síðasta þingi og fyrir því eru mörg og veigamikil rök. Við vitum líka að stofnun mannréttindastofnunar hefur verið útfærð með ýmsum hætti í nágrannalöndum okkar en eftir vandlega yfirlegu og yfirferð, m.a. í forsætisráðuneytinu, var ákveðið að hér skyldi stofna sjálfstæða stofnun undir hinu háa Alþingi. Ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið rétt niðurstaða og farsæl lending og hafði bundið miklar vonir við að við gætum fagnað því að sú góða stofnun tæki til starfa núna um áramótin.
Nú flytur hæstv. forseti þetta frumvarp um frestun á gildistökunni. Ég skal hafa skilning á því að það megi kannski fresta þessari gildistöku um einhverjar vikur. Það er hins vegar þannig að það stóð upp á okkur hér á hinu háa Alþingi og þingflokkana sem það skipa að tilnefna fulltrúa í stjórn Mannréttindastofnunar og ganga frá því í þeirri kosningu í haust. Það hefur ekki verið gert og það hefur tafist úr hömlu sem er afar bagalegt af því að nú líður að áramótum. Og eins og við vitum þá á ný stjórn að hafa það verkefni í rauninni að undirbúa opnun Mannréttindastofnunar Íslands, ráða þar forstjóra og sjá til þess að stofnunin geti hafið störf með sómasamlegum hætti.
Þá er það einnig þannig, eins og fram kom í máli hæstv. forseta sem mælti fyrir frumvarpi sínu hér áðan, að það þurfti og þarf enn að huga mjög vel að stöðu réttindagæslumanna, réttindagæslu fatlaðs fólks. Hún verður innan Mannréttindastofnunar og það er, eins og fram hefur komið, búið að segja þeim störfum lausum frá og með áramótum vegna þess að það átti eftir að ráða fólk aftur til starfa, þau sem það kusu og vildu, innan nýrrar stofnunar. Ég held að við séum öll sammála um að það megi ekki koma neitt rof í þá þjónustu og að þingmenn séu almennt mjög meðvitaðir um það hversu mikilvæg hún er og viðkvæm í raun og veru.
Með frumvarpi hæstv. forseta er lögð til ákveðin tímabundin bráðabirgðaráðstöfun á því, þ.e. réttindagæslunni. Ég er þeirrar skoðunar eftir að hafa kynnt mér þetta frumvarp í morgun að það megi skoða það að fresta ef til vill gildistöku laganna. En það má ekki verða til þess að mánuðum saman séu réttindagæslumenn starfandi í einhvers konar bráðabirgðafyrirkomulagi og bráðabirgðaástandi, auk þess sem ég sé ekkert því til fyrirstöðu að við ljúkum því verkefni sem við hófum með því að afgreiða lögin héðan í júní í sumar og tilnefnum og kjósum fulltrúa í stjórn Mannréttindastofnunar. Það er hægur leikur. Það hefur verið til umfjöllunar og milli þingflokka vikum ef ekki mánuðum saman og við vitum að það er verkefni sem við getum leyst hér og nú ef vilji er til þess.
Ég vildi að þetta kæmi fram hér núna við 1. umræðu. Frumvarpið fer inn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd til umfjöllunar og þar þarf nefndin auðvitað að ræða þetta og vonandi komast að einhverri sameiginlegri niðurstöðu um málið. En ég hef áhyggjur af því ef það á að fresta gildistökunni um hálft ár, setja stöðu réttindagæslu fatlaðs fólks í uppnám og einnig fresta kosningu í stjórn, sem er mjög mikilvæg forsenda þess að hægt sé að undirbúa stofnun Mannréttindastofnunar Íslands. Því segi ég aftur: Ég held að það sé ekkert til fyrirstöðu í því og að við eigum að vinda okkur í það mál hér áður en þessu löggjafarþingi lýkur 30. nóvember næstkomandi.