Mannréttindastofnun Íslands.
Hæstv. forseti. Það eru tvö atriði sem ég vildi kannski árétta hér í þessari umræðu í tilefni af orðum hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur. Það er eðlilegt og eins og gert er ráð fyrir að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fjalli um frumvarpið og þau álitamál sem það kann að kalla á. Ég er sammála hv. þingmanni um það að nálgunin í þessu hlýtur alltaf að miðast við að það verði sem minnst rof á störfum réttindagæslumanna og það verði tryggt að hægt verði að halda uppi þeirri þjónustu með sómasamlegum hætti. Það er auðvitað eitt af markmiðum þessa frumvarps að renna stoðum undir það að hægt sé að grípa til bráðabirgðaráðstafana sem hjálpa okkur til þess að halda þeirri þjónustu uppi.
Tvö atriði sem ég vildi bara nefna: Annars vegar varðandi tímalengdina á því að gildistakan verði vegna þess að fólk hefur auðvitað velt því fyrir sér hér innan þings hvort skemmri tími en hálft ár sé nægilegur til að vinna að því undirbúningsstarfi sem nauðsynlegt er til að stofnunin geti tekið til starfa með viðunandi hætti. Upphaflega, bara þannig að þess sé getið, skoðuðum við það, ég og skrifstofan, hvort styttri tími væri fær í þessu sambandi og það var okkar mat að svo væri ekki. Það þyrfti þennan tíma miðað við það að nýtt þing kemur ekki til starfa fyrr en eftir áramót og það verður auðvitað að fara í ákveðnar breytingar í framhaldinu sem fela í sér að ný stjórn þarf að ráða framkvæmdastjóra og framkvæmdastjóri þarf að ráða starfsfólk og það getur þurft einhvern umþóttunartíma áður en hægt er að hefja starfsemina með viðunandi hætti.
Hitt atriðið varðar kjör stjórnar. Þá vildi ég bara skjóta því að, þannig að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd gæti velt því fyrir sér, hvort ekki væri eðlilegra úr því sem komið er að stjórn stofnunarinnar endurspeglaði þing eins og það verður skipað eftir kosningar frekar en fyrir kosningar.