Mannréttindastofnun Íslands.
Virðulegur forseti. Ég vildi koma hérna upp til að segja að mér finnst miður að það þurfi að fresta gildistöku þessa mikilvæga frumvarps og þar með fresta því að Mannréttindastofnun sé sett á fót. Þetta er mikilvæg réttarbót. Þetta er líka mikilvægt atriði í því að uppfylla okkar alþjóðlegu skuldbindingar. Þetta er forsenda fyrir því að við getum lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, að hafa sjálfstæða mannréttindastofnun. Það er af þeim sökum mjög leiðinlegt að það hafi ekki enn þá tekist að skipa í stjórn og koma þessum verkefnum af stað sem þarf að fara í til að þessi stofnun geti hafið störf og gegnt sínu mikilvæga hlutverki í íslensku samfélagi.
Ég vildi ekki halda langa ræðu hér, vildi einfaldlega koma upp til að segja að ég sem sit í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er öll af vilja gerð að tryggja að ekki verði neitt rof á þjónustu í ljósi þessarar frestunar en langar að taka undir með hv. þingmanni og formanni hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að mér finnst mjög mikilvægt að skoða það hvort ekki sé vænlegt að skipa stjórnina mögulega tímabundið, þ.e. skemmri tíma en séð er fyrir um í frumvarpinu, fyrst við erum á annað borð að krukka í þessu frumvarpi, til að við töpum ekki hér allt að fjórum mánuðum í undirbúningsvinnu. Það er aðallega út af því. Við þurfum, að ég tel, að fresta gildistökunni vegna þess að burt séð frá því hvort við náum að skipa stjórn núna eða ekki þá mun ekki nást að klára alla þá undirbúningsvinnu sem þarf að klára til að setja þessa stofnun á fót fyrir áramót. Það er bara augljóst miðað við þær vikur sem eru eftir að þær munu ekki duga til að sinna þeim verkefnum með fullnægjandi hætti. En ég myndi ekki vilja binda hendur okkar með því að við getum ekki fyrr en einhvern tímann og einhvern tímann hafist handa þannig að ég myndi vilja gera það þannig að það væri hægt að byrja á þessu. Vissulega þurfum við að fresta gildistökunni en það væri gott að skipa í stjórnina áður en þessu þingi er slitið, jafnvel tímabundið ef við viljum taka tillit til breyttrar samsetningar eftir alþingiskosningar sem eru jú á allra næsta leyti, en að við séum ekki að tefja óþarflega mikið fyrir okkur í að setja þessa mikilvægu stofnun á fót.
Ég ætla svo sem ekki að hafa þetta lengra.