155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

Mannréttindastofnun Íslands.

327. mál
[12:57]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Mig langaði bara að fá að spyrja hv. þingmann hér örstutt en ég tek að öðru leyti undir með henni varðandi þau atriði sem hún fór hérna yfir. Ég sit einnig í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og tel mikilvægt að það sé eins vel haldið utan um þetta mál og hægt er. Ég tek undir að úr þessu færi ekki nógu vel á því að ætla að keyra þetta í gegn úr því að tíminn líður eins og hann hefur gert þannig að að svo komnu máli held ég að það sé bæði skynsamlegra og réttara í stöðunni, til þess einmitt að stíga þessi skref bara vandvirkt og vel.

Mig langaði hins vegar að fá að spyrja hv. þingmann. Ég skildi umræðuna um hvaða viðmið hæstv. forseti kemur hér fram með í sínu frumvarpi þannig að það sé einhvers konar viðmið frá skrifstofu þingsins um tímarammann til að ná þá með sóma utan um þau verkefni sem þyrfti að ná utan um til þess að setja á laggirnar þessa stofnun. Ég er bara að velta fyrir mér og hugsa upphátt — og ég tek algerlega undir að það er alger óþarfi að kveikja í einhverjum mánuðum eða eyða einhverjum mánuðum í ekki neitt sem ekki eru nauðsynlegir til að ná utan um undirbúning þessarar stofnunar — og vildi kannski fá að heyra frá hv. þingmanni, þrátt fyrir að við getum svo að sjálfsögðu rætt það á vettvangi nefndarinnar, hvort það sé þá eitthvert samspil við þingið sjálft sem væri hægt að finna einhvern elegant tímaramma í því hvenær sé ekki of langt gengið en samt nógu langt gengið til að ná almennilega utan um verkefnin sem þarf að vinna í áður en þessi stofnun er sett á laggirnar.