155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

Mannréttindastofnun Íslands.

327. mál
[12:58]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem ég er kannski einna helst að benda á er að þessir mánuðir sem við höfum ekki starfandi stjórn nýtast þá bara ekki sem skyldi. Mér finnst rétt að skoða hvort það sé ekki bara einfaldara að skipa stjórnina núna og hafa það þá jafnvel tímabundið í ljósi ábendinga eða athugasemda sem hafa komið varðandi samsetningu þingsins eftir kosningar en að við séum ekki að láta það tefja þessa vinnu, hvort stjórnin sé skipuð eða ekki. Í frumvarpinu eins og það er fram til núna er gert ráð fyrir því að stjórnin sé skipuð, ef ég man þetta rétt, fyrir 1. mars á næsta ári. Það er þess vegna sem ég er að vísa í þessa fjóra mánuði sem mér finnst þá fara forgörðum.

Varðandi hvað væri hæfilegur tímarammi — mér finnst auðvitað bara rétt að fá upplýsingar bæði frá þinginu og velferðarráðuneytinu og öllu þessu áður en ég gef það upp hver mín afstaða er, hvað ég telji vera hæfilegan tíma fyrir þetta. Ég vil ekki endilega úttala mig um það hér við hv. þingmann þar sem mér finnst ég ekki hafa þær upplýsingar sem ég þarf til að lýsa því yfir. Það sem ég er að benda á er einfaldlega að við getum mögulega flýtt eitthvað fyrir og vonandi stytt tímann sem tekur að koma þessu í gagnið með því að skipa stjórnina fyrir kosningar.