155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

Mannréttindastofnun Íslands.

327. mál
[13:02]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Bara til að hafa það alveg skýrt var ég ekki að leggja til að stjórn sem yrði skipuð núna á þessu löggjafarþingi gæti einungis starfað til 1. mars eða 1. febrúar. Ég vil bara vera algerlega skýr með það. Ég var að sjá fyrir mér kannski einhverja skemmri skírn heldur en fjögur ár vegna þess að það bindur auðvitað allt næsta kjörtímabil varðandi þessa skipun. Ég var frekar að hugsa um kannski eitt ár eða eitthvað slíkt. Það væri þá í raun stjórnin sem kæmi að því að setja stofnunina á fót og gæti alveg klárað það verk mín vegna. Ég er ekki einu sinni það föst á því að það verði að vera þannig, mér fyndist mögulega bara allt í lagi að þetta yrði til fjögurra ára. Ég bara þarf aðeins að sjá þetta mál þróast í þann örskamma tíma sem við höfum til að fylgjast með þessu máli þróast. Það sem ég er að meina með þessu er að mér finnst ekki að við eigum að vera að tefja vísvitandi fyrir okkur með því að koma stjórninni ekki af stað. Við þurfum hins vegar samt sem áður að fara í þessa æfingu sem forseti leggur til gagnvart því að fresta gildistökunni vegna þess að burt séð frá því hvort okkur takist að skipa stjórnina núna eða ekki þá verður að fresta gildistökunni af því að það gefst ekki nægur tími til að setja stofnunina á fót á þessum skamma tíma. En mér finnst ekki að við eigum viljandi að tefja fyrir okkur með því að skipa hana ekki fyrir kosningar. Það er nú allt sem ég segja vildi.