155. löggjafarþing — 23. fundur,  14. nóv. 2024.

sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

329. mál
[13:08]
Horfa

Frsm. velfn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sérstakan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 94/2023, um framlengingu, en það er velferðarnefnd sem leggur málið fram.

Í 4. mgr. 15. gr. laga um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ er kveðið á um að heimilt sé að greiða sértækan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum vegna húsnæðiskostnaðar sem fellur til vegna leiguhúsnæðis á tímabilinu 10. nóvember 2023 til og með 31. desember 2024. Með þessu frumvarpi er lagt til að úrræðið verði framlengt til 31. mars næstkomandi. Þá er jafnframt lögð til breyting á 4. mgr. 10. gr. laganna en í ákvæðinu er kveðið á um að umsóknir um húsnæðisstuðning samkvæmt lögunum þurfi að berast í síðasta lagi 31. mars. Í frumvarpinu er lagt til að sá frestur verði framlengdur um þrjá mánuði. Er það í samræmi við fyrri frumvörp um framlengingu á úrræðinu.

Framangreindar tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir því að úrræðið um sérstakan húsnæðisstuðning verði framlengt. Nefndin telur þó, og okkur finnst mikilvægt að taka það fram, að mikilvægt sé að sem fyrst eftir að nýtt þing kemur saman verði ráðist í vinnu við að skoða að gera breytingar á úrræðinu. Um það var svolítið rætt í velferðarnefnd en nefndarmenn voru sammála um að ekki gæfist nægur tími til að fara með fullnægjandi hætti í að skoða slíkar breytingar. Nefndin var algerlega samstiga í því að telja mikilvægt að úrræðið myndi halda áfram en detti ekki niður um komandi áramót og því leggjum við sem nefnd þetta frumvarp fram.

Frú forseti. Í ljósi þess að það er velferðarnefnd sem leggur málið fram legg ég til að málið gangi til 2. umræðu.