155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[12:15]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vil nú fyrst þakka formanni efnahags- og viðskiptanefndar og nefndarmönnum fyrir gott samstarf og snarpa lotu. Ekki tókst samkomulag um hverja einustu grein eins og gengur. En hér erum við að ræða og greiða atkvæði um bandorm sem er náttúrlega undirstaða fyrir fjárlög sem Samfylkingin kom ekki að að semja og mun ekki samþykkja. Við verðum því gul á málinu í heild. Við munum þó styðja einstakar greinar sem varða almannatryggingar og félagslega aðstoð og svo auðvitað breytingartillögur sem nefndin öll var einhuga um sem varða hag og málefni Grindvíkinga.