155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[12:18]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Líkt og aðrir sem hér hafa komið, hv. þingmenn, þá langar mig að byrja á því að þakka nefndarmönnum í efnahags- og viðskiptanefnd fyrir gott samstarf um þetta. Það er ansi óvenjulegt að lagt sé fram frumvarp og síðan sé í rauninni ekki til meiri hluti fyrir því. Við erum búin að reyna að ná saman á mörgum sviðum hér og það eru góðar greinar hér inni á milli sem við styðjum. Við styðjum þó ekki frumvarpið allt og munum þar af leiðandi vera gul á málinu í heild en þökkum enn og aftur fyrir mjög gott samstarf.