155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[12:26]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir sína vinnu og sérstaklega að koma hér með breytingu hvað varðar sóknargjöldin. Ég tel þetta afar brýnt og ég vil fá að taka hér fram sem dóms- og stundum kirkjumálaráðherra að mér þykir miður að ekki hafi tekist að koma fyrirkomulagi um sóknargjöld í betra horf. Ég vil einnig upplýsa um það að ég hef skipað starfshóp sem átti að skila fyrir áramót tillögum að fyrirkomulagi um sóknargjöld til framtíðar. Við þekkjum öll mikilvægi starfsemi trúar- og lífsskoðunarfélaga í íslensku samfélagi og ég vil nefna sérstaklega að í mörgum samfélögum er unnið gríðarlega mikilvægt starf en á sama tíma glíma t.d. margar sóknir hringinn í kringum landið við alvarlegan fjárhagsvanda.