155. löggjafarþing — 24. fundur,  15. nóv. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[12:28]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Frá því ég byrjaði hérna þá hefur þetta verið árviss rútína: Ráðherra fær að sýnast vera ráðdeildarsamur með því að leggja til að sóknargjöld lækki, formaður efnahags- og viðskiptanefndar fær að skora stig heima í héraði með því að styðja sóknarnefndir úti um allt land. Þetta er hringekja sem fer að verða pínu þreytt að fara í gegnum og væri kannski betra að leyfa félagasamtökum úti í bæ að innheimta sín félagsgjöld sjálf eins og við höfum gert með aðra gjaldstofna sem fóru í gegnum hendur þingsins. Búnaðargjald er ekki lengur innheimt af löggjafanum, af hverju sóknargjöld? Það standa engin rök til þess. Þetta er tímaskekkja og sú vinna sem hæstv. dómsmálaráðherra talaði um ætti að sjálfsögðu að leiða til þess að þetta sóknargjaldakerfi leysist einfaldlega upp.