155. löggjafarþing — 24. fundur, 15. nóv. 2024.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
2. mál
Virðulegi forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um hækkun barnabóta. Það er gríðarlega mikilvægt að gera það og það gleður mig að sjá að hér er atkvæðataflan græn og greinilegt að þingheimur er sammála um þessa mikilvægu aðgerð sem allar barnafjölskyldur í landinu koma til með að njóta.