breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Virðulegi forseti. Ég held að ég sé á réttum stað í atkvæðagreiðslunni; í d-lið erum við að gera breytingu sem fellir niður auðlindaskatt á heitt vatn frá fjarvarmaveitum. Þetta er gríðarlegt réttlætismál. Það skiptir máli að við komum til móts við fólk sem hefur verið að glíma við hærri hitaveitukostnað. Ég ætlast til þess að veiturnar skili þessu til þess fólks sem nýtir fjarvarmaveitur. Þetta er bara svona gott dæmi um hvernig starfið hefur gengið hér á þingi á undanförnum dögum. Það hefur verið mikil samstaða um þetta og ég þakka efnahags- og viðskiptanefnd fyrir það og vonast til þess að allir verði á grænu.