155. löggjafarþing — 24. fundur, 15. nóv. 2024.
skattar og gjöld.
300. mál
Herra forseti. Við í Samfylkingunni sitjum að mestu leyti hjá við afgreiðslu þessa máls líkt og þess fyrra sem hér var afgreitt. Við munum þó styðja kaflann um breytingar sem varða nýsköpunarfyrirtæki og grein sem allir í efnahags- og viðskiptanefnd voru sammála um, þ.e. að fella út ákvæði um persónuafslátt lífeyrisþega sem búa erlendis. Um það voru allir í nefndinni sammála.